Hildur...

11.07.2007 00:02:36 / hildur

ammæli ammæli ammæli...

Jamm, júlí er sko ammælismánuður vinahópsins:D

ég átti ammæli á fimmtudaginn síðasta, 5.júlí.. sem var alveg ótrúlega skemmtilegur dagur. Fór upp í búsatð til moms og pops á miðvikudeginum og svaf eina nótt...algjör sólarsæla þar á ferð8)  kom svo heim eftir dýrindismáltíð og þá mættu nokkrir vinir hér heim með pakka og alles, ég ekkert smá heppin;) Svo lá leið okkar á glaumbar þar sem snillingurinn Hlynur Ben spilaði:D Ég vil bara kærlega fyrir mig enn einu sinni...þetta var frábær dagur í alla staði:D

en Guðrún Erna Litla Stóra frænka átti svo ammæli á laugardaginn sem var sko surprise allan daginn...við vöktum hana með ammælissöng og morgunverði kl.9:30 um morguninn og svo gáfum við henni steinanudd í ammælisgjöf og fór hún í það eftir hádegi, svo var skroppið í keilu og nokkrum bjöllum stútað og svo allsherjargrillveisla heima hjá henni og massa partý..:D  og það skemmtilegasta við þetta allt var að hún hafði ekki hugmynd um neitt af þessu...;) hehe

Elísa Delísa sæta átti svo ammæli í gær, eða mánudaginn 9.júlí og hélt hún kaffiboð at her place, var að vinna...en gaf henni svaka fínt peningatré í dag;) ehehe vona bara að peningarnir vaxi lengi lengi á því:D

svo á ívar a.k.a ibsen ammæli 15. júlí...:!:  og svo fullt af frænkum og frændum;)

En ómæ..ég fékk massa gjöf frá moms og pops...Köbenferð með öllu..þ.e. flug og hótel;)  ekki slæmir foreldrar þar á ferð og ekki einu sinni stórammæli. en því miður verð ég þá að hætta við eyjaferðina sem ég var búin að hlakka massa mikið til:S en eyjan er örugglega ekkert að fara að sökkva á næstunni :haha:hehehe

komin háttatími..er með gísla arnar næstu tvo daga og eins gott að vera fersk og úthvíld miðað við allt prógrammið sem er búið að ákveða:D

takk enn og aftur fyrir mig...á endalaust af góðum, frábærum og yndislegum vinum;)

p.s. svo er bara grill tomorrow...og bannað að beila hehehe

-later- 


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.07.2007 23:21:43 / hildur

Skrifað í stein...

Sagan segir að tveir vinir hafi gengið í eyðimörk. Á leiðinni fóru þeir að rífast, og annar vinurinn gaf hinum létt á kjammann. Honum sárnaði, en án þess að segja nokkuð skrifaði hann í sandinn " Í DAG GAF BESTI VINUR MINN MÉR, EINN Á ´ANN!" Þeir gengu áfram þangað til þeir komu að vatnslind og þar fóru þeir út í. Vinurinn sem hafði orðið fyrir kjaftshögginu var nærri drukknaður, en var bjargað af vini sínum. Þegar hann hafði jafnað sig , risti hann í stein; "Í DAG BJARGAÐI BESTI VINUR MINN MÉR FRÁ DRUKKNUN". Vinurinn sem bæði hafði veitt honum tiltal og bjargað honum spurði: "Þegar ég sló þig, skrifaðir þú í sandinn, og núna skrifar þú í steininn. "Af hverju?" Hann svaraði: Þegar einhver gerir þér eitthvað illt áttu að skrifa það í sandinn, þar sem vindur fyrirgefningar getur eytt því. En þegar einhver gerir þér eitthvað gott þá áttu að grafa það í stein þar sem enginn getur eytt því. "LÆRÐU AÐ SKRIFA SÁRINDI ÞÍN Í SANDINN OG GRAFA HAMINGJU ÞÍNA Í STEIN"! Það er sagt að það taki mann eina mínútu að hitta sérstaka manneskju, einn tíma að kunna að meta hana, einn dag að elska hana, en HEILA ævi að gleyma henni!

"GEFÐU ÞÉR TÍMA TIL AÐ LIFA"

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 00:18:51 / hildur

Hvernig er lífið þitt? Hver er nr.1? Ertu hamingjusöm/samur?

 

 Hamingjan er ferðalag, ekki áfangastaður.... Í dag er tími til að: vinna eins og þú þurfir ekki á peningnum að halda, elska eins og enginn hafi nokkuð tíman sært þig og dansa eins og engin sé að horfa...

Þið hafið pottþétt lesið þessa sögu.... en hún er góð og þessvegna ætla ég að láta hana aftur inn á.. allir að lesa hana og hugsa aðeins..

Dag einn var sérfræðingur í tímaskipulagningu að tala fyrir framan hóp
viðskiptafræðinema. Til að koma meiningu sinni almennilega til skila, þá
notaði hann sýnikennslu sem nemendurnir gleyma aldrei.

Þar sem hann stóð fyrir framan þennan hóp af metnaðarfullu fólki, þá sagði
hann: "Jæja, þá skulum við hafa próf." Hann tók upp 5 lítra krukku með
stóru víðu opi, og setti hana á borðið fyrir framan sig.  Svo tók hann um
það bil 10 hnefastóra steina og varfærnislega kom þeim fyrir í krukkunni,
einn af einum.

Þegar krukkan var full, og ekki hægt að koma fleiri steinum í hana, þá
spurði hann: "Er krukkan full?" Allir í bekknum svöruðu: "Já."

"Jæja?" sagði hann.  Hann teygði sig undir borðið og tók upp fötu með möl.
Því næst sturtaði hann smá möl í krukkuna og hristi hana um leið sem
orsakaði það að mölin komst niður í holrúmin á milli stóru steinanna.  Svo
spurði hann hópinn aftur:

"Er krukkan full?" Í þetta sinn grunaði nemana hvað hann var að fara.
"Sennilega ekki," svaraði einn þeirra.
"Gott!"  svaraði sérfræðingurinn. Hann teygði sig undir borðið og tók upp
fötu af sandi. Hann hellti úr henni í krukkuna og sandurinn rann í öll
holrýmin sem eftir voru milli malarinnar og stóru steinanna.

Enn spurði hann: "Er krukkan full?" "NEI!" æptu nemendurnir.
Aftur svaraði hann: "Gott!"

Hann tók því næst könnu af vatni og hellti í krukkuna þar til hún var alveg
full.
Svo leit hann á bekkinn og spurði: "Hver er tilgangur þessarrar
sýnikennslu?"
Einn uppveðraður nemandinn rétti upp höndina og sagði, "Tilgangurinn er að
sýna, að það er sama hversu full dagskráin hjá þér er, ef þú virkilega
reynir, þá geturðu alltaf bætt fleiri hlutum við!"  "Nei." Svaraði
sérfræðingurinn.  "Það er ekki það sem þetta snýst um. Sannleikurinn sem
þetta dæmi kennir okkur er þessi:  Ef þú setur ekki stóru steinana í fyrst,
þá kemurðu þeim aldrei fyrir."

Hverjir eru 'stóru steinarnir' í þínu lífi?  Börnin þín? Fólkið sem þú
elskar? Menntunin þín? Draumarnir þínir?  Verðugt málefni? Að kenna eða
leiðbeina öðrum? Gera það sem þér þykir skemmtilegt? Tími fyrir sjálfa(n)
þig? Heilsa þín? Maki þinn.
Mundu að setja STÓRU STEINANA í fyrst, eða þú munt aldrei koma þeim fyrir.
Ef þú veltir þér upp úr litlu hlutunum (mölin, sandurinn, vatnið) þá
fyllirðu líf þitt með litlum hlutum sem skipta í raun ekki máli og þú munt
aldrei hafa þann tíma sem þú þarft til að eyða í stóru mikilvægu hlutina í
þínu lífi (stóru steinarnir).
Semsagt, í kvöld, eða í fyrramálið, þegar þú hugsar um þessa stuttu sögu,
spurðu þig þá að þessarri spurningu:
 "Hverjir eru 'stóru steinarnir' í mínu lífi?"
 Settu þá svo fyrst í krukkuna.

Vona að fólk lesi þessa sögu og hugsi um hana....! 


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 01:07:51 / hildur

bloggggggggggg

Jam...það er nú liðinn soldið langur tíma síðan ég skrifaði síðast....er búin að lofa og lofa að blogga, en það bara gerist ekki. þannig að nú er bara að taka sig saman í andlitinu og reyna að halda þessari síðu gangandi:D

en það er nú ekki margt búið að gerast...eða allavega ekkert rosa margt8|

það stendur þó 1 uppúr...hann skúli minn var að útskrifast frá Iðnskólanum í Reykjavík... í málaranum;) ekkert smá stolt af stóra bró...nú er hann bara kallaður skúli málari, frekar töff8)

en ég skellti mér á smá skrall með ívari, telmu, svenna og höbbu á lauardaginn. rosa skemmtó, byrjuðum heima hjá höbbu og fórum svo á hressó og dönsuðum og dönsuðum;) TAKK FYRIR FRÁBÆRT KVÖLD:!::!:

en jam ég keypti mér ný gleraugu..hlakka sko mega sega til að fá þau:haha:

ALLIR SVO AÐ MÆTA Á HLYN BEN Á FIMMTUDAGINN Á GLAUMBAR...MEGA STEMMARI MEÐ SKEMMTILEGASTA TRÚBADOR ÍSLANDS:haha: MÆTA SNEMMA OG FÁ GEFINS BJÓR.....

-farin að sofa- góða nótt-

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.05.2007 00:38:09 / hildur

Yndið Mitt Hún DaGgA:)

Fyrir 20 árum síðan...jam heilum tveim tugum síðan fæddist lítil sæt snót sem fékk það fallega nafn Dagbjört. Kom hún í heiminn með dökkt hár og sitt fallega bros, sem hún gat notað til að dáleiða alla, hvort sem það voru skyldmenni eða bara ókunnugt fólk:haha: en jamm þegar hún var loksins farin að labba var hún sett af foreldrum sínum á leikskólann Kató og var hún þar þessi sæta snót og skemmti sér konunglega eins og börn gera á leikskólum. svo kom að skólagöngu hennar og hún endaði í Setbergsskóla, þar sem foreldrar hennar keyptu lóð í setberginu og byggðu myndarlegt parhús ásamt Hildi og Krissa (blogga kannski síðar um þau..snillingar8)) en já þessi yndislega manneskja fór svo 16 ára í Flensborg sem er hinn æðislegi framhaldsskóli í HFJ. tók hún nokkrar annir þar og fékk nóg (sem ég reyndar skil ekki...bara nokkuð góður skóli) en jamm, enga útúr snúninga...hún ákvað því að skipta um skóla og fara í Fjölbraut í Garðabæ..A.K.A FG. tók hún nokkra áfanga þar en ákvað síðan að stunda skóla lífsins, sem margir hafa gott og gaman af:haha:

en jamm þessi frábæra, sæta, yndislega, krúttaða, jákvæða, brosmilda, trausta snót er sko mín bestasta besta vinkona og það eru margir heppnir að eiga hana að:D

Dagga mín...við elskum þig öll...aðallega ég eheheh

-love-

                      


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 19:42:05 / hildur

lúxus á enda..hehe

ótrúlegt en satt þá fóru moms og pops til köben;) 5 daga ferð, með ömmu og afa. þau höfðu það bara rosa gott, verð nú samt aðeins að fá að röfla... það er alveg ótrúlegt hvað þau fara alltaf í stuttar ferðir, ég hafði það svo gott hérna heima með lille bro:D foreldraferðir ættu að vera minnst 7 dagar eða bara jafnvel 10:haha:

en úr einu í annað... hvað er eiginlega í gangi með þessa pólitík????? ég held að flokkarnir séu að missa sig í auglýsingaherferðum og öðru. meira að segja búnir að hertaka tv-ið. en ég fór á samfylkingarfund í fyrradag á hrafnistu...hahahaha (kommon ég vinn þar og er þar öllum stundum) en jam þau komu mér nú alveg til að hlæja og þau voru ekki neitt að röfla, bara spjalla og segja sögur og e-ð, gamla fólkið fílar sögur í tætlur þannig að...þetta var bara nokkuð góður fundur, en á fleiri fer ég sko ekki:!::!::!:

er ennþá bara fúl og bitur út af álverinu:evil::cry:

næsta helgi...??? hvað á að gera???

Hlynur Ben - snillingurinn sjálfur verður á AROMA á laugardaginn:haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 16:47:24 / hildur

....

alveg ótrúlegt hvað þessar helgar eru fljótar að lýða:cry: en þetta var æðisleg helgi...

erla átti ammæli á föstudaginn og var pörtý heima hjá guddu og matta..svaka flott...matur og vín og bjór og síðast en ekki síst 77:haha: hahaha þetta kvöld endaði eiginlega bara á hvolfi..hehe  Laugardagurinn var svo bara ÓNÝTUR í gegn sko:( vissi ekki hvernig ég ætti að vera, fannst ég vera alltaf á hreyfingu og endalaust flökurt...vibbi dauðans. en ég mætti í vinnuna og varð bara nokkuð hress;) svo skellti ég mér í sund í hádeginu og er orðin svaka hresss...vííií

held að það verði bara vatn næstu helgar hehehe

-later-


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 23:10:03 / hildur

bloggi bloggi...

mar er bara alltaf jafn duglegur að blogga:haha: hehe.  ætla að punkta smá:

Spánn:

  • frábærir ferðafélagar
  • frábært veður
  • legið í sólbaði
  • verslað (ALLTOF mikið) en það var bara gaman;)
  • borðað góðan mat
  • heimsótt örnu
  • drukkið góða drykki:haha: (malibu í pinja)
  • keyrt næstum 1000 km...geri aðrir betur á einni viku:D
  • og bara slakað á...
  • FRÁBÆR FERÐ Í ALLA STAÐI:haha:

En núna eru víst páskarnir búnir...ekkert voða skemmtilegir páskar:S vann og vann og vann og vann...svo bara svaf mar þess á milli8| :!: ég og dagga skelltum okkur í smá road trip á föstudag þegar ég var búin að vinna, fórum upp í bústað til moms og pops, svaka fínt, borðuðum humar, skelltum okkur á fjórhjólið (sem er algjör snilld;)) og spiluðum... fórum svo heim og gerðum okkur reddý fyrir djamm (sem dagga beilaði á, þegar við vorum að fara í bæinn:S hehe) fór í bæinn og dansaði og dansaði:D

en jæja, ætla að fara að horfa á tv..og svo sofa í hausinn á mér, það er sko ræktin kl.6 í fyrró:D

HLYNUR BEN er að spila á AROMA á laugardaginn næsta...á ekki að mæta eða?????

-later-

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 18:15:22 / hildur

vííííí....:)

þá er komið að því....ég fer til SPÁNAR á morgun:haha: get ekki beðið sko:S  er samt ekki búin að pakka...því það er svo deeem leiðinlegt, vildi að það væri pakkað fyrir mann;) það væri sweet hehehe.

en hvað er samt málið með fólkið???????????????????????????????

það er ekkert commentað...en samt 20 eða 30 eða 40 eða fleiri búnir að tjékka á þessu...hahaha þið eruð alveg ótrúleg;) þarf kannski bara að fara að skrifa e-ð með viti...hahaha..kannski seinna.

það verður allavega smá ferðsaga þegar ég kem heim og maybe myndir:haha:

verð að fara að pakka... -later-


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 11:39:56 / hildur

AMMÆLI Í GÆR;)

 

TIL HAMINGJU MEÐ AMMÆLIÐ ÁSA MÍN...LOKSINS ORÐIN 20 ÁRA:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 11:10:20 / hildur

spánarferð!!!

jább...ég gær voru sko keyptir flugmiðar til Alicante, pöntuð íbúð í Torrevieja og pantaður bíll (m/útvarpi) múhahaha:haha: fyrir þá sem vita ekki, þá er hægt að leigja bíl án þess að hafa útvarp, og það munar ekki nema 2 evrum á þeim:lol:  en ég er að fara með sigrúnu og kristínu söru og við förum á miðvikudaginn eftir viku og verðum í viku...;) þvílíkur lúxus á manni stundum hehe.

arna býr í alicante og það verður sko klárlega heimsótt hana...sakna þín eskan:(

en annars er bara voða lítið í gangi...bara vinna og vinna og ræktin og ræktin. sem er samt bara hellíti fínt;)

  gosbrunnurinn í mibænum:)

  cabo cervera. hótelið sem ég var á seinast;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 12:24:36 / hildur

köben eða ekki köben??...

Jam það er góð pæling... mig langar svoooo mikið að skella mér bara, en svo hugsa ég...hmmm, að ég verði nú að safna pengs svo mar komist nú einhverntíman að heiman:lol: hehe en annars er köben alltaf á sínum stað8) mar skellir sér kannski bara í ágúst áður en skólinn byrjar...mar er að fara í hárgreiðsluna, að meika það feitt múhahahaha.

annars er lífið þessa dagana bara hrafnista og ræktin....

-later-


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 23:26:21 / hildur

vóóó!!!!!!

ein sem nennir sko EKKI að blogga!!! en svona er þetta bara.

alltaf sama bara að frétta held ég...nóg að gera í skólanum, skemmtir sér inn á milli... hlynur ben var geggjaður á áttunni:haha: hann klikkar sko ekki.

svo var djammað á föstudaginn...innflutningspartý hjá skúla og brynju;) svaka stuð:!: kvöldið endaði svo á aroma

var að koma af áttunni...frekar sjabbý staður mar...hann var sko ekki svona slæmur seinast þegar ég var þarna...en ég meina HEY!!! gaman að hitta fólkið

er komin með nýja síðu með stelpunum...er ekki enn búin að ákveða hvort ég eigi að hætta með þessa eða ekki!

blog.central.is/bollurnar4 - TJÉKKIT ÁT!!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 16:14:43 / hildur

föstudagskvöldið 3.nóvember kl.23!!!!!

Já...það verður sko massa fjör næsta föstudagskvöld:haha: Hlynur Ben ætlar að mæta á 8-una kl.23 og spila fram á rauða nótt8) kominn tími til að Hafnfirðingar og aðrir mæti og hristi síðdegis þunglyndið af sér:!::!::!:


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan
Dagsetning
23. febrúar 2012
Litlu krúttin